Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 43. máls.
Þskj. 1415 — 43. mál.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skilgreina öll störf á vegum ríkisins sem unnt er að vinna að mestu eða öllu leyti óháð staðsetningu, m.a. í því skyni að:
– jafna aðstöðu fólks til að sækja um og sinna margvíslegum störfum á vegum hins opinbera,
– auka möguleika fólks af landsbyggðinni til að gegna störfum á vegum ríkisins með því að gera hæfu fólki mögulegt að búa víðar en í sveitarfélagi viðkomandi stofnunar,
– stækka hóp hæfra umsækjanda um störf á vegum ríkisins,
– auka skilvirkni og draga úr kostnaði í opinberum rekstri.
Tekið verði sérstaklega fram í auglýsingum frá ríkinu þegar störf án staðsetningar eru laus til umsóknar.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Nr. 30/133.
Þskj. 1415 — 43. mál.
Þingsályktun
um störf án staðsetningar á vegum ríkisins.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skilgreina öll störf á vegum ríkisins sem unnt er að vinna að mestu eða öllu leyti óháð staðsetningu, m.a. í því skyni að:
– jafna aðstöðu fólks til að sækja um og sinna margvíslegum störfum á vegum hins opinbera,
– auka möguleika fólks af landsbyggðinni til að gegna störfum á vegum ríkisins með því að gera hæfu fólki mögulegt að búa víðar en í sveitarfélagi viðkomandi stofnunar,
– stækka hóp hæfra umsækjanda um störf á vegum ríkisins,
– auka skilvirkni og draga úr kostnaði í opinberum rekstri.
Tekið verði sérstaklega fram í auglýsingum frá ríkinu þegar störf án staðsetningar eru laus til umsóknar.
Samþykkt á Alþingi 17. mars 2007.